þriðjudagur, 29. júní 2010

Mánuður í að ég fari!


Hæhæ,
ég fékk fósturfjölskyldu fyrir rúmlega mánuði, þetta er fjögurra manna fjölskylda semsagt mamman, pabbinn og tvær stelpur sem eru fæddar 1993 og 1991. Þau búa í bæ sem heitir Sao Miguel do Oeste sem er í Santa Catarina í Suður-Brazilíu.
Ég fékk senda flugáætluninna fyrir rúmlega 2 vikum og hún er þannig að ég flýg til New York og lendi klukkan 12:30 og gisti eina nótt og legg af stað daginn eftir klukkan 15:00. Þaðan flýg ég til Dallas í Texas og legg svo af stað til Sao Palo klukkan 19:50 og verð lent um morguninn og fer beint á komu námskeiði.
Ég er alveg rosalega spennt og ætla að reyna blogga hérna eins mikið og ég nenni meðan ég er úti sem skiptinemi :-)

Ps. Myndin sem að þið sjáið hérna er kirkjan í bænum að kvöldi til, skil ykkur vel ef þið hélduð að þetta væri brjálaður skemmtistaður hehe.